Helluístöð / Smáhlutir
Árið 2001 keypti Húsblikk ehf. á Hellu lítið fyrirtæki sem framleiðir öryggisístöð úr ryðfríu stáli fyrir fullorðna, börn og fatlaða. Árið 2006 keyptu Steinn Másson og Dagrún Helgadóttir ístaðafyrirtækið af Húsblikk ehf og kalla það Smáhluti. Þau smíða hefðbundin ístöð, sérsmíða og merkja ístöð með stöfum ef fólk óskar.
Helluístöð fengu Iðntæknistofnun til að mæla togþol á ístöðunum sem þau framleiða.
Komu ístöðin mjög vel úr þeim prófunum eins og sjá má hér.

